Í riti þessu er gerð grein fyrir helstu grunnþáttum þjóðaréttar með áherslu á uppruna, tilurð og eðli þeirra réttarreglna sem gilda í samskiptum ríkja, alþjóðastofnana og annarra viðurkenndra þjóðréttaraðila. Ritið skiptist í tólf kafla þar sem fjallað er um viðfangsefni og þróun þjóðaréttar, réttarheimildir, aðila í þjóðarétti, landsvæði og ríkisyfirráð, réttindi og skyldur ríkja og lögsögu, þjóðréttarsamninga, þjóðréttarbrot og ábyrgð ríkja, markmið og stofnanaskipulag sameinuðu þjóðanna, úrlausn ágreiningsmála á alþjóðavettvangi, valdbeitingu í alþjóðakerfinu, mannréttindareglur á vettvangi þjóðaréttarins og alþjóðasamvinnu og helstu sérsvið þjóðaréttar.
Ýmis svið þjóðaréttar eru hér skoðuð sérstaklega frá íslensku sjónar horni. Þar má nefna áhrif reglna hafréttar á afmörkun íslensks yfir ráðasvæðis, innleiðingu og stöðu þjóðréttarsamninga að íslenskum rétti og umfjöllun um helstu alþjóðastofnanir sem ísland á aðild að.
Listaverð ritsins er 8.720 kr. Útsölustaðir ritsins eru m.a. bóksala Úlfljóts, Lögbergi, Bóksala stúdenta, Háskólatorgi, og verslanir Pennans / Eymundssonar.