Verðbréfamarkaðsréttur I – markaðir og viðskipti með fjármálagerninga (2024) e. Aðalstein E. Jónasson og Andra Fannar Bergþórsson

Bókaútgáfan hefur gefið út ritið Verðbréfamarkaðsréttur I – markaðir og viðskipti með fjármálagerninga eftir Aðalstein E. Jónasson, dómara við Landsrétt, og Andra
Fannar Bergþórsson, lögmann hjá ADVEL og dósent við lagadeild
Háskólans í Reykjavík.

Bókin er sú fyrri af tveimur en áætlað er að seinni bókin, Verðbréfamarkaðsréttur II – upplýsingaskylda, markaðssvik og yfirtökureglur, komi út í lok árs 2025 eða í byrjun árs 2026.

Bókin er hugsuð sem kennslu- og fræðslurit á sviði verðbréfamarkaðsréttar en umfangsmiklar breytingar hafa orðið á löggjöf á þessu sviði innan Evrópska efnahagssvæðisins og hér á landi á síðastliðnum árum.

Markmið bókarinnar er að hjálpa lesendum að skilja út á hvað þetta viðamikla regluverk gengur og tryggja að á einum stað geti þeir nálgast ítarlega og vandaða umfjöllun um þær réttarheimildir sem gilda á þessu þýðingarmikla réttarsviði. Bókin er hugsuð fyrir nemendur á háskólastigi, fjárfesta, starfsmenn fyrirtækja á fjármálamarkaði, eftirlitsaðila, lögmenn, dómara, endurskoðendur, fjölmiðla og aðra sem vinna með regluverkið á einn eða annan hátt eða hafa áhuga á að kynna sér það.

Í bókinni er að finna ítarlega umfjöllun um hvernig löggjöf á þessu sviði hefur þróast hér á landi og innan Evrópska efnahagssvæðisins. Vikið er að því hvernig eftirliti með regluverkinu er háttað og helstu grundvallarhugtökum sem gilda á þessu réttarsviði. Loks er þar að finna ítarlega umfjöllun um þær fjárfestaverndarreglur sem þar gilda, svo
sem almennu fjárfestaverndarregluna, reglur um flokkun viðskiptavina, mat á hæfi og tilhlýðileika, upplýsingagjöf til viðskiptavina, besta framkvæmd, hagsmunarárekstra, skilyrðum fyrir töku fjármálagerninga til viðskipta, lýsingar, almenn útboð og fleira.