Ritið Mannréttindasáttmáli Evrópu. Meginreglur, framkvæmd og áhrif á íslenskan rétt er nú komið út í 2. útgáfu. Ritstjóri er Björg Thorarensen prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Í ritinu er fjallað um Mannréttindasáttmála Evrópu, réttindin sem hann verndar og dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu. Samhliða er því lýst hvernig áhrif sáttmálans birtast í íslenskum rétti og lagaframkvæmd. Auk þess er fjallað um málsmeðferð fyrir Mannréttindadómstólnum, stöðu dóma hans að íslenskum rétti og fullnustu þeirra.

Fyrsta útgáfa ritsins kom út árið 2005 en bókin hefur verið uppseld um árabil. Hefur efnið verið endurskoðað og uppfært með tilliti til nýrra viðauka við Mannréttindasáttmálann, dómaframkvæmdar, lagaþróunar og nýjustu fræðilegu heimilda. Þá er vísað til fjölmargra hæstaréttardóma frá síðasta áratug þar sem reynt hefur á ákvæði sáttmálans.

Ritið er ætlað þeim sem vinna að rannsóknum á mannréttindum svo og laganema og öðrum sem stunda nám á þessu sviði. Ritið hefur sérstakt hagnýtt gildi fyrir starfandi lögfræðinga, einkum á sviði stjórnsýslu og í dómskerfinu.

Ritið er samvinnuverkefni lagadeilda Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Höfundar eru sérfræðingar á sviði mannréttinda, þar á meðal eru fyrrverandi og núverandi dómari við Mannréttindadómstólinn. Í ritstjórn eru Davíð Þór Björgvinsson, Guðrún Gaukdóttir og Oddný Mjöll Arnardóttir en aðrir höfundar eru Eiríkur Tómasson, Elín Blöndal, Hjördís Björk Hákonardóttir, Kristín Benediktsdóttir, Páll Þórhallsson, Ragna Bjarnadóttir, Ragnar Aðalsteinsson, Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir, Róbert R. Spanó og Þórdís Ingadóttir.

© Copyright - Bókaútgáfan Codex