Tvö ný rit frá Bókaútgáfunni Codex – Nálægðarreglan og Viðskiptabréf, 2. útgáfa
Bókaútgáfan Codex kynnir með stolti tvö ný rit. Þau eru sem hér segir: Nálægðarreglan eftir dr. Oddnýju Mjöll Arnardóttur og Viðskiptabréf, 2. útgáfa eftir dr. jur. Pál Hreinsson.
Nálægðarreglan e. Oddnýju Mjöll Arnardóttur
Í ritinu Nálægðarreglan eftir Oddnýju Mjöll Arnardóttur er fjallað um umbótaferli sem Mannréttindadómstóll Evrópu hefur gengið í gegnum á síðustu árum og breytingar á dómaframkvæmd hans. Varpað er fræðilegu ljósi á nálægðarregluna og svigrúm til mats og gefin heildstæð mynd af því hvernig staða dómstólsins í hinu evrópska kerfi mannréttindaverndar og samband hans við innlend yfirvöld hefur breyst á síðustu árum. Í ritinu er auk þess fjallað sérstaklega um nýlega dóma mannréttindadómstólsins í málum gegn Íslandi og þeir nýttir til skýringa á þeim hræringum sem til umfjöllunar eru. Loks er leitast við að gera ítarlega grein fyrir því hvernig samband innlendra dómstóla við mannréttindadómstólinn birtist í yngri dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands og dregnar af því ályktanir um hvort breytingar hafi orðið á nálgun Hæstaréttar og hvort frekari breytinga er þörf ef innlendir dómstólar hyggjast nýta sér það aukna svigrúm til mats sem hinar nýju nálganir mannréttindadómstólsins bjóða upp á.
Ritið er ætlað þeim sem stunda rannsóknir og kennslu á sviði mannréttinda en gagnast ekki síður lögmönnum, dómurum, stjórnvöldum og öðrum þeim sem glíma við álitaefni tengd mannréttindavernd.
Höfundur ritsins, dr. Oddný Mjöll Arnardóttir er rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands og dómari við Landsrétt. Í rannsóknum sínum hefur hún einkum fengist við mannréttindi, bæði frá sjónarhorni stjórnskipunarréttar, þjóðaréttar og Evrópuréttar
Viðskiptabréf, 2. útgáfa e. Pál Hreinsson
Ritið Viðskiptabréf eftir dr. jur. Pál Hreinsson er nú komið út í 2. útgáfu. Meginefni ritsins er sem fyrr viðskiptabréfsreglur. Í þessari 2. útgáfu ritsins hefur höfundur rannsakað með skipulegum hætti þá dóma er varða skuldabréf og önnur viðskiptabréf sem hafa gengið í kjölfar uppgjörs á hinum föllnu bönkum í bankahruninu. Þannig hafa gengið margir dómar sem varpa skýru ljósi á þær óskráðu meginreglur sem gilda í íslenskum rétti um skuldabréf. Má þar t.d. nefna dóma um gjalddaga, lausnardag og forsendur fyrir uppgreiðslurétti skuldara, breyting á greiðslustað eða greiðslufyrirkomulags skuldabréfs, túlkun á samningsbundnum gjaldfellingarheimildum og ráðstöfðun greiðslu sem ekki hrekkur til fullra efnda skuldabréfs svo og um túlkun ákvæða skuldabréfa á milli upphaflegs skuldara og kröfuhafa. Í ritinu er einnig fjallað um dóma, sem varpa ljósi á ný tilvik er varða viðskiptabréfsreglur um skuldabréf, s.s. um mótbárutap skuldara og réttindamissi þriðjamanns.
Markmiðið með ritinu er að setja efni þess fram á kerfisbundinn hátt svo auðvelda megi þeim sem vinna með skuldabréf í störfum sínum að tileinka sér þær fjölmörgu óskráðu reglur sem um þau gilda. Ritið er því ómissandi fyrir lögmenn, dómara og starfsmenn fjármálafyrirtækja, auk þess sem það er ætlað laganemum.
Höfundur ritsins, dr. jur. Páll Hreinsson, er forseti EFTA-dómstólsins og fyrrverandi hæstaréttardómari. Hann gengdi starfi dósents og prófessors við lagadeild Háskóla Íslands um 10 ára skeið og kenndi þá m.a. þætti í kröfurétti um skuldabréf og viðskiptabréfsreglur.