Stjórnskipunarréttur. Mannréttindi, 2. útgáfa e. Björgu Thorarensen
Stjórnskipunarréttur, Mannréttindi, 2. útgáfa, er grundvallarrit um mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar sem einnar grunnstoðar íslenskrar stjórnskipunar. Í fyrri hluta ritsins er rannsakaður sögulegur uppruni og kenningar um eðli mannréttindareglna, skýring stjórnarskrárákvæðanna og áhrif alþjóðasamninga. Síðari og stærri hluti ritsins fjallar um einstaka mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar, þróun þeirra og réttarframkvæmd um beitingu þeirra. Í þessari 2. útgáfu hefur efnið verið endurskoðað og uppfært með tilliti til dómaframkvæmdar frá síðasta áratug og nýrra fræðilegra heimilda. Margir stefnumarkandi dómar hafa gengið þar sem reynt hefur á túlkun mannréttindaákvæðanna. Auk þess er fjallað um úrlausnir Mannréttindadómstóls Evrópu, einkum í kærumálum gegn íslenska ríkinu og metin áhrif þeirra á skýringu stjórnarskrárákvæða og íslenskan rétt.
Ritið er ætlað þeim sem stunda rannsóknir, kennslu og nám á sviði stjórnskipunarréttar og mannréttinda. Það er einnig ómissandi fyrir lögmenn, dómara og stjórnvöld sem fást við álitaefni um mannréttindi svo hvern þann sem vill kynna sér gildandi réttarreglur á þessu sviði.
Björg Thorarensen er prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Helstu rannsóknar- og kennslugreinar hennar eru stjórnskipunarréttur, þjóðaréttur, alþjóðlegar mannréttindareglur og persónuverndarréttur. Hún hefur ritað fjölmargar greinar og bækur á rannsóknarsviðum sínum, þar á meðal ritið Stjórnskipunarréttur. Undirstöður og handhafar ríkisvalds frá 2015 sem myndar ásamt riti þessu heildstæða útgáfu um stjórnskipunarrétt. Þá var Björg nýlega sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til kennslu og rannsókna á sviði lögfræði.