Stjórnsýsluréttur – málsmeðferð 2. útg. (2025) e. Pál Hreinsson
Þegar til stendur að beita opinberu valdi í einstöku máli um rétt eða skyldu manns gilda ákveðnar reglur um meðferð þess. Efni ritsins fjallar um þessar málsmeðferðarreglur svo og aðrar reglur sem þeim tengjast.
Framsetning ritsins er sem fyrr í handbókarformi. Þetta form líkist um margt skýringarritum ef frá er talinn sá munur að handbókin byggist á almennri efnisflokkun á umfjöllunarefni fræðasviðsins en skýringarrit byggjast upp á skýringu einstakra lagagreina eftir röð þeirra í viðkomandi lögum. Í þessari handbók eru annars vegar dregin saman fræðin svo og lögskýringarsjónarmið sem líta ber til við skýringu málsmeðferðarreglna sem gilda um meðferð stjórnsýslumála. Hins vegar eru reifaðir helstu dómar
Hæstaréttar og Landsréttar og álit umboðsmanns Alþingis sem reglurnar varða.
Í 2. útgáfu ritsins hafa alveg nýir kaflar verið ritaðir um þagnarskyldu og um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Aðrir kaflar hafa verið uppfærðir miðað við nýjustu fræðiskrif, dóma og álit umboðsmanns Alþingis.
Ritið skiptist í 28 kafla þar sem umfjöllunarefnin eru eftirfarandi:
1. kafli Stjórnsýsluréttur
2. kafli Markmið málsmeðferðarreglna
3. kafli Réttarheimildir málsmeðferðarreglna og lagaskil
4. kafli Um tilurð stjórnsýslulaga og túlkun þeirra
5. kafli Almenn aðferðarfræði við töku stjórnvaldsákvarðana
6. kafli Stjórnvald í skilningi stjórnsýslulaga
7. kafli Stjórnvaldsákvarðanir
8. kafli Aðili stjórnsýslumáls
9. kafli Aðstoðarmenn og umboðsmenn aðila stjórnsýslumáls
10. kafli Valdmörk stjórnvalda
11. kafli Sérstakar hæfisreglur
12. kafli Upphaf stjórnsýslumáls
13. kafli Leiðbeiningarskylda stjórnvalds
14. kafli Málshraðareglan
15. kafli Rannsóknarreglan
16. kafli Álitsumleitan
17. kafli Andmælareglan
18. kafli Upplýsingaréttur aðila stjórnsýslumáls
19. kafli Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga
20. kafli Tjáningarfrelsi og þagnarskylda
21. kafli Ákvörðun máls
22. kafli Form stjórnvaldsákvarðana
23. kafli Rökstuðningur og kæruleiðbeiningar
24. kafli Birting ákvörðunar
25. kafli Rafræn meðferð stjórnsýslumála
26. kafli Tunga íslenskrar stjórnsýslu
27. kafli Um nauðsyn virkrar stjórnunar við meðferð stjórnsýslumála
28. kafli Ógilding stjórnvaldsákvarðana vegna annmarka á málsmeðferð
Höfundur: Páll Hreinsson, forseti EFTA-dómstólsins.
Fjöldi blaðsíðna: 1148 bls.

