Bótaréttur II, 2. útg

Bótaréttur II, 2. útgáfa, e. Eirík Jónsson og Viðar Má Matthíasson

Bókaútgáfan Codex hefur gefið út bókina Bótaréttur II. Vátryggingaréttur og bótareglur félagsmálaréttar eftir Eirík Jónsson og Viðar Má Matthíasson í 2. útgáfu. Ritið fjallar um tvö svið bótaréttar, það er almennan hluta vátryggingaréttar og bótaúrræði félagsmálaréttar vegna líkamstjóns. 

Fyrsta útgáfa kom út árið 2015 en hefur verið uppseld um nokkurt skeið. Talsverðar lagabreytingar hafa orðið á sviði vátrygginga- og félagsmálaréttar undanfarin ár og í þessari útgáfu hefur allt efni verið endurskoðað og uppfært með tilliti til þeirra breytinga, sem og nýrrar dóma- og úrskurðarframkvæmdar og nýlegra fræðiskrifa.

Sá hluti bókarinnar er fjallar um almennan hluta vátryggingaréttar er grundvallarrit um það réttarsvið og greinist í sjö hluta. Sá fyrsti felur í sér inngang, þar sem m.a. er fjallað um vátryggingafélög, dreifingu vátrygginga og úrlausnaraðila á sviði vátryggingaréttar. Annar hluti fjallar um vátryggingarsamninginn, þ.á m. um stofnun, túlkun og slit slíkra samninga, sem og um iðgjaldið og greiðslu þess. Í þriðja hluta er fjallað um réttarsambandið og ýmsar skyldur aðila, en í fjórða hluta um atvik sem takmarkað geta ábyrgð vátryggingarfélagsins.

Fimmti hluti ritsins gerir grein fyrir almennum reglum um ábyrgð vátryggingarfélagsins og sá sjötti fjallar um rétt þriðja manns til vátryggingarbóta. Í sjöunda hluta er loks vikið að uppgjöri vátryggingarbóta og brottfalli réttar til þeirra.

Sá hluti bókarinnar er fjallar um bótareglur félagsmálaréttar hefur að geyma yfirlit um önnur fjárhagsleg úrræði en krafa um skaðabætur eða vátrygginarbætur, sem til álita koma fyrir einstakling sem orðið hefur fyrir líkamstjóni eða öðru áfalli.

Þar er síðan vikið nánar að þeim þeim tveimur tegundum bóta sem hvað mesta hagnýta þýðingu hafa í tengslum við skaðabætur og vátryggingar, annars vegar bótum úr slysatryggingum almannatrygginga og hins vegar örorkulífeyri frá lífeyrissjóðum.

Eiríkur er prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og landsréttardómari. Viðar Már er rannsóknaprófessor við lagadeild Háskóla Íslands og fyrrverandi hæstaréttardómari. Saman rituðu þeir fjögurra binda heildarverk um bótarétt, Bótaréttur I til IV, sem út komu á árunum 2015 til 2023, en Bótaréttur II er fyrsta bindið sem kemur út í 2. útgáfu.

Höfundar: Eiríkur Jónsson og Viðar Már Matthíasson

Fjöldi blaðsíðna: 764 bls.