Nýtt rit frá Bókaútgáfunni Codex – Nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks

Bókaútgáfan Codex hefur nú gefið út ritið Nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks eftir Ragnheiði Bragadóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Undanfarin ár hefur Ragnheiður unnið að viðamiklu rannsóknarverkefni um kynferðisbrotin undir heitinu Kynferðisbrot – Löggjöf og dómaframkvæmd og birtast ýmsar niðurstöður þeirrar rannsóknar í nýju bókinni.

Í bókinni Nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks er yfirgripsmesta og ítarlegasta umfjöllun sem birst hefur um ákvæði íslensku hegningarlaganna um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, hina refsiverðu háttsemi og refsingar fyrir brotin, með samanburði við norrænan rétt. Efni bókarinnar skiptist í sex hluta. Í fyrsta hlutanum er fjallað um ýmis almenn atriði sem eiga við um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks. Þar er einnig gerð grein fyrir réttarsögulegri þróun lagaákvæða um nauðgun frá upphafi Íslandsbyggðar allt fram á okkar daga þegar hugtakið samþykki var tekið inn í ákvæðið um nauðgun árið 2018. Næstu fjórir hlutar fjalla um einstakar brotategundir, þ.e. nauðgun sem felst í kynmökum án samþykkis, nauðgun þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu, kynferðislega misneytingu og kynferðislega áreitni. Fjölmargir dómar eru reifaðir til að varpa ljósi á einstaka þætti efnisins og í bókinni er tæmandi lýsing á dómaframkvæmd Hæstaréttar í málum er varða nauðgun og kynferðislega áreitni. Í lokakafla bókarinnar er kannað hvort nýlegar lagabreytingar hafi orðið til þess að bæta réttarstöðu þolenda brotanna og hvort þörf sé á frekari breytingum. Leitast er við að setja viðfangsefnið í þjóðfélagslegt samhengi, auk þess sem fjallaðer um gildandi lagaákvæði og túlkun dómstóla á gagnrýninn hátt.

Bókin, sem er 472 bls., er ætluð öllum þeim sem stunda rannsóknir á þessu sviði og til kennslu á háskólastigi, bæði í lögfræðigreinum og öðrum greinum félagsvísinda. Hún er ómissandi fyrir lögfræðinga og aðra sem fjalla um kynferðisbrotamál í störfum sínum. Auk þess er hún aðgengileg öllum þeim sem láta sig varða þetta mikilvæga svið réttarins og felur í sér framlag til þjóðfélagsumræðunnar á þessu sviði.

Útsölustaðir eru Bóksala stúdenta, Háskólatorgi, Bóksala Úlfljóts, Lögbergi og nokkrar verslanir Pennans/Eymundssonar. Einnig er bókin fáanleg á Heimkaup.is.

Ragnheiður Bragadóttir lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands 1982 og stundaði framhaldsnám við Háskólann í Kaupmannahöfn. Hún hefur stundað kennslu og rannsóknir í refsirétti við lagadeild Háskóla Íslands frá 1984, og varð prófessor í lögum þann 1. janúar 2000, fyrst íslenskra kvenna. Ragnheiður er mjög virkur þátttakandi í norrænu og alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi og hefur stýrt alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og dvalið við rannsóknir í háskólum á Norðurlöndum, Þýskalandi, Englandi og Bandaríkjunum. Hún var fulltrúi Íslands í Norræna sakfræðiráðinu (Nordisk Samarbejdsråd for Kriminologi) 1998-2012, varaformaður 2007-2009 og formaður 2010-2012. Ragnheiður á að baki langan ritferil og hefur birt bækur, fjölda bókarkafla og fræðiritgerða, bæði hér heima og erlendis.

Ný vefsíða Bókaútgáfunnar Codex hefur nú verið opnuð

Vefsíða Bókaútgáfunnar Codex hefur fengið væna andlitslyftingu, en nýrri vefsíðu var hleypt af stokkunum í gær. Gamla vefsíðan var komin verulega til ára sinna og fullnægði m.a. ekki tæknikröfum nútímans um gott aðgengi í mismunandi gerðum tækja. Framkvæmd verksins var í höndum Premis og kunnum við þeim góðar þakkir fyrir vel unnin störf.

Mikið er á döfinni hjá Bókaútgáfunni Codex og fjöldi nýrra og spennandi rita að koma út á næstu mánuðum. Hvetjum við alla til að fylgjast vel með á komandi tímum.

Að gefnu tilefni minnum við gesti vefsíðunnar á bókaklúbb Bókaútgáfunnar Codex. Bókaklúbburinn er afar mikilvægur rekstri bókaútgáfunnar í því starfi að efla fræðiskrif á sviði lögfræði. Upplýsingar um hann og skráningarform má finna hér á síðunni eða með því að smella hér.

Allar ábendingar um hvað betur megi fara á nýju vefsíðunni eru vel þegnar og hvetjum við fólk til að senda tölvupóst á bc@bc.is ef eitthvað er.

Tvö ný rit frá Bókaútgáfunni Codex

Tvö ný rit frá Bókaútgáfunni Codex
Bókaútgáfunni Codex er það sönn ánægja að tilkynna að út hafa nú verið gefin tvö ný rit á vegum bókaútgáfunnar. Þau eru sem hér segir: Mannréttindasáttmáli Evrópu. Meginreglur, framkvæmd og áhrif á íslenskan rétt, 2. útgáfa og Afmælisrit Jóns Steinars Gunnlaugssonar.

_________________________

Ritið Mannréttindasáttmáli Evrópu. Meginreglur, framkvæmd og áhrif á íslenskan rétt er nú komið út í 2. útgáfu. Ritstjóri er Björg Thorarensen prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Í ritinu er fjallað um Mannréttindasáttmála Evrópu, réttindin sem hann verndar og dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu. Samhliða er því lýst hvernig áhrif sáttmálans birtast í íslenskum rétti og lagaframkvæmd. Auk þess er fjallað um málsmeðferð fyrir Mannréttindadómstólnum, stöðu dóma hans að íslenskum rétti og fullnustu þeirra.

Fyrsta útgáfa ritsins kom út árið 2005 en bókin hefur verið uppseld um árabil. Hefur efnið verið endurskoðað og uppfært með tilliti til nýrra viðauka við Mannréttindasáttmálann, dómaframkvæmdar, lagaþróunar og nýjustu fræðilegu heimilda. Þá er vísað til fjölmargra hæstaréttardóma frá síðasta áratug þar sem reynt hefur á ákvæði sáttmálans.

Ritið er ætlað þeim sem vinna að rannsóknum á mannréttindum svo og laganema og öðrum sem stunda nám á þessu sviði. Ritið hefur sérstakt hagnýtt gildi fyrir starfandi lögfræðinga, einkum á sviði stjórnsýslu og í dómskerfinu.

Ritið er samvinnuverkefni lagadeilda Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Höfundar eru sérfræðingar á sviði mannréttinda, þar á meðal eru fyrrverandi og núverandi dómari við Mannréttindadómstólinn. Í ritstjórn eru Davíð Þór Björgvinsson, Guðrún Gaukdóttir og Oddný Mjöll Arnardóttir en aðrir höfundar eru Eiríkur Tómasson, Elín Blöndal, Hjördís Björk Hákonardóttir, Kristín Benediktsdóttir, Páll Þórhallsson, Ragna Bjarnadóttir, Ragnar Aðalsteinsson, Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir, Róbert R. Spanó og Þórdís Ingadóttir.

_________________________

Afmælisrit Jóns Steinars Gunnlaugssonar er gefið út í tilefni af sjötugsafmæli Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara, en hann varð sjötugur 27. september s.l.

Í ritinu er að finna fjölmargar greinar um lögfræðileg efni, t.d. um meðferð mála fyrir Hæstarétti þar sem meðal annars er hugað að réttaröryggi málsaðila fyrir réttinum og að efnisþáttum brota sem mjög hafa borið á góma á undanförnum misserum í dómum réttarins í eftirmálum efnahagshrunsins 2008.

Í ritnefnd eru Guðrún Gauksdóttir, Hafsteinn Þór Hauksson, Heimir Örn Herbertsson, Hörður Felix Harðarson og Katrín Helga Hallgrímsdóttir.

Greinar í ritinu eru eftirfarandi:

Á eigin vegum eftir Óskar Magnússon

Markaðsþreifingar eftir Aðalstein E. Jónasson

Holocaust Denial and the Marketplace of Ideas eftir Alan M. Dershowitz

Uppreist æru og óflekkað mannorð eftir Arnar Þór Jónsson

Stuðla íslenskar réttarfarsreglur að réttaröryggi? eftir Baldvin Björn Haraldsson

Um skattasamkeppni og skattasamráð eftir Bjarnfreð Ólafsson

Viðurkenning erlendra dómsúrlausna eftir Eirík Elís Þorláksson

On Market Manipulation and Umboðssvik/Mandatsvig eftir Erik Werlauff

Réttarfarssektir gagnvart lögmönnum og réttlát málsmeðferð skv. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu eftir Geir Gestsson og Védísi Evu Guðmundsdóttur

Um gagnaframlagningu í Hæstarétti eftir Grím Sigurðsson

Stjórnskipuleg vernd kvóta eftir Guðrúnu Gauksdóttur

Banna ætti ríkisábyrgð í stjórnarskrá eftir Gunnlaug Jónsson

Réttarsalir samfélagsmiðlanna eftir Hafstein Þór Hauksson

Ríkir réttlát málsmeðferð fyrir Hæstarétti Íslands? eftir Hróbjart Jónatansson

Réttur sakaðra manna til aðgangs að gögnum eftir Hörð Felix Harðarson

Er hægt að koma böndum á manninn? eftir Jóhannes Sigurðsson

Skattlagning skáldaðra tekna eftir Jón Elvar Guðmundsson

Mat á varanlegum miska og varanlegri læknisfræðilegri örorku eftir Magnús Pál Albertsson og Ragnar Jónsson

Stjórnsýslan í Hæstarétti eftir Ragnar Aðalsteinsson

Aðild að samkeppnismálum eftir Snorra Stefánsson

Nauðgun unglingsstúlkna eftir Svölu Ísfeld Ólafsdóttur

Stormsenterinn eftir Einar Kárason

Útsölustaðir ritanna eru bóksala Úlfljóts, Lögbergi; Bóksala stúdenta, Háskólatorgi, valdar verslanir Pennans/Eymundssonar og Heimkaup (www.heimkaup.is)

Nýtt rit frá Bókaútgáfunni Codex

Bókaútgáfan Codex hefur gefið út 3. útgáfu ritsins um Um lög og rétt. Helstu greinar íslenskrar lögfræði undir ritstjórn Bjargar Thorarensen prófessors. Ritið veitir innsýn í helstu grunngreinar íslenskrar lögfræði sem eru stjórnskipunarréttur, stjórnsýsluréttur, réttarfar, samninga- og kröfuréttur, skaðabótaréttur, refsiréttur, eignaréttur og fjölskyldu- og erfðaréttur. Ritið, sem kom fyrst út árið 2006, hefur verið uppselt um nokkurt skeið en hefur nú verið endurskoðað og uppfært með tilliti til lagaþróunar og nýrrar dómaframkvæmdar.

Markmið með útgáfu ritsins er einkum að gefa laganemum í grunnnámi og öðrum sem vilja kynnast helstu grundvallarreglum íslensks réttar kost á að fræðast um það efni á einum stað. Hver kafli ritsins er helgaður einu sviði lögfræðinnar þar sem farið er yfir helstu fræðilegu undirstöður hvers sviðs. Jafnframt er varpað ljósi á framkvæmd dómstólanna á réttareglum um efnið og helstu stefnumarkandi dóma.

Ritið nýtist vel til að leggja grunn að frekara námi í lögfræði á háskólastigi, og hefur m.a. verið nýtt til kennslu á fyrsta ári laganáms við Háskóla Íslands. Þá er það gagnlegt uppflettirit fyrir starfandi lögfræðinga um helstu greinar lögfræðinnar. Einnig hefur ritið upplýsingagildi fyrir almenning og umræðu í þjóðfélaginu um íslenskt réttarkerfi og helstu réttarreglur.

Höfundar eru helstu fræðimenn um efnið hver á sínu sviði og jafnframt núverandi eða fyrrverandi kennarar við Lagadeild Háskóla Íslands.

Útsölustaðir ritsins eru bóksala Úlfljóts, Lögbergi; Bóksala stúdenta, Háskólatorgi; valdar verslanir Pennans/Eymundssonar.

Nýtt rit frá Bókaútgáfunni Codex

Bókaútgáfan Codex hefur nú gefið út ritið Markaðssvik eftir Aðalstein E. Jónasson. Ritið hefur að geyma heildstæða umfjöllun um löggjöfina sem gildir á þessu sviði, þ.e. ákvæði laga um verðbréfaviðskipti um upplýsingaskyldu skráðra félaga, viðskipti innherja og markaðsmisnotkun. Í bókinni er vikið að ástæðum þess að löggjöfin er svona ströng, hvaða hagsmuni henni er ætlað að vernda og hvernig hún hefur þróast innan Evrópusambandsins og hér á landi fyrir og eftir bankahrunið haustið 2008.

Markmiðið með ritinu er að auðvelda þeim sem vinna á og í tengslum við markaði með fjármálagerninga að tileinka sér þetta regluverk og þar með starfa í takt við það. Hún er hugsuð fyrir fjárfesta, starfsmenn fjármálafyrirtækja, eftirlitsaðila, lögmenn, dómara, endurskoðendur, fjölmiðla, laganema og aðra sem vinna með regluverkið á einn eða annan hátt.

Höfundur bókarinnar, Aðalsteinn E. Jónasson, er hæstaréttarlögmaður og einn af meðeigendum LEX. Hann hefur víðtæka reynslu af starfsemi fjármálafyrirtækja, bæði frá sjónarhorni fræðimanns og lögmanns. Hann lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1992 og LL.M.-gráðu frá Harvard Law School árið 2000. Hann öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 1993 og Hæstarétti árið 1998. Auk þess var hann lektor og síðar dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík árin 2002 til 2011. Aðalsteinn var nýverið skipaður sem einn 15 dómara við Landsrétt, sem tekur til starfa í ársbyrjun 2018.

Útsölustaðir ritsins eru bóksala Úlfljóts, Lögbergi; Bóksala stúdenta, Háskólatorgi; valdar verslanir Pennans/Eymundssonar og einnig er hægt að versla ritið á heimasíðu Heimkaupa, www.heimkaup.is.